top of page

Öndunartækni | Öndunarþjálfun

XPT performance breathing certified instructor
Wim Hof Method certified instructor iceland - Andri iceland
Oxygen-Advantage-4.png
Buteyko Clinic international certified instructor

Af hverju öndunartækni?

Nú þegar langvarandi streita, kvíði, svefntruflanir, sjálfsofnæmissjúkdómar, kulnun og aðrir kvíðatengdir kvillar verða æ algengari út um allan heim, er kominn tími til þess að leita aftur í grunninn og gera grundvallarbreytingar fyrir fullt og allt.

Góðu fréttirnar eru þær að öndun er vinsælt umræðuefni. Fólk er að verða meðvitaðra um kraft öndunartækni til að ná sem bestum árangri og öðlast betri heilsu. Að grípa til fyrirbyggjandi ráðstafana til þess að bæta eigin heilsu, byggja upp seiglu og kanna möguleika sína til fulls. 

Öndunartækni hefur verið þekkt í aldaraðir. Í dag eru ótal aðferðir og tækni í boði. Frá sérhæfðum nálgunum til vísindalega sannaðra aðferða. Frá öndunaræfingum sem þjóna ákveðnum tilgangi til hagnýtrar öndunar í okkar daglega lífi. En þó hafa þær í raun allar sömu meginreglur. Markmiðið er að færa okkur aftur í átt að jafnvægi. Að kjarnanum okkar. Einn andardrátt í einu. Hér og nú.

 

Þér verður vísað í áttina að kjarna öndunartækni. Að finna jafnvægi, líkamlega, andlega og tilfinningalega. Með því að nota samsetningu af því sem við vitum að virkar til þess að ná því besta úr hverjum andardrætti. Að gefa þér verkfærin, skilninginn, til að þú náir tökum á eigin iðkun.

 

"Þú getur æft allt sem þú vilt, borðað allan réttan mat, sofið 8 tíma á nóttunni. Ef þú andar ekki rétt verður þú alltaf veikur. 99% fólks eru með öndunarerfiðleika. Fólk gerir sér ekki grein fyrir skaðanum sem þau eru að valda á líkamanum sínum og heila með því að vera svona." - James Nestor, alþjóðlegur metsölubók um öndun.

Nokkrir þekktir kostir þess að stunda öndunartækni:

  • Andlegt og líkamlegt jafnvægi

  • Losar um streitu

  • Hámarkar vellíðan

  • Bætir ónæmiskerfið

  • Eykur orku

  • Bætir líkamlegt þol

  • Tilfinningalegt jafnvægi

  • Bætir svefn

  • Dýpri hugleiðsla

  • Vinnur úr áföllum

  • Aukin efnaskipti

  • Skýrir hugsu

Það skiptir máli að anda rétt.

Tölum um nokkrar gagnreyndar aðferðir sem ég kenni:

  • Wim Hof Method - viðurkenndur leiðbeinandi - Level 2

  • Buteyko Clinic International - viðurkenndur leiðbeinandi

  • Oxygen Advantage - viðurkenndur leiðbeinandi

  • XPT Performance Breathing - viðurkenndur þjálfari

Ég er oft spurður um muninn á þessum gagnreyndu aðferðum og fólk veltir oft fyrir sér hver þeirra er best. En í sannleika sagt eru þær einstakar og geta einnig unnið saman eftir einstaklingum og tilætluðum árangri fyrir andlega og líkamlega heilsu.

  • Öndunartækni Wim Hof Method er öflug öndunaræfing til að öðlast ýmsa heilsufarslega ávinninga: meiri orku, minnkað streitustig og aukið ónæmissvar til að takast á við sýkla. Sameinum þetta með kuldameðferð og hugarfari til að læra að halda sjálfum sér í jafnvægi í öllum aðstæðum. Að læra að vera í lagi sama hvað.

  • Buteyko-aðferðin leggur meiri áherslu á það hvernig við öndum og beinist að fólki með heilsufars- eða höfuðbeinavandamál sem tengjast öndun. Aðlöguð fyrir börn, unglinga og fullorðna á öllum aldri með sérstökum öndunaræfingum og aðferðum sem beitt er við sérstökum heilsufarsvandamálum.

  • Oxygen Advantage þjálfun hagræðir öndunarmynstri hjá heilbrigðu fólki, með það að markmiði að bæta endurheimt, orkustig, fókus, einbeitingu og árangur hreyfingarinnar.

  • Að lokum er það XPT, sem leggur áherslu á mikil afköst í íþróttum og hvernig á að nota öndunartækni til að bæta árangur.

Það hvernig við öndum hefur sterk áhrif á efnafræðilega og lífeðlisfræðilega starfsemi líkama okkar. Magn súrefnis sem við öndum að okkur hefur áhrif á magn orkunnar sem er losuð inn í frumurnar í líkamanum. Öndun er auðveldasti og mikilvægasti hlutinn af sjálfvirka taugakerfinu sem hægt er að stjórna og stýra. 

Hinar ýmsu aðferðir sem við kennum eru taldar tengjast því að draga úr einkennum sjúkdóma eins og liðagigt, MS, Parkinsonsveiki, astma, sarklíki, æðabólgu og fjölmargra sjálfsofnæmissjúkdóma.

Anda með Andra - Breathe with Andri

Anda með Andra
Vikulegir Öndunartímar

Lengd: 1 klst. hver tími

  • 1 klst. af leiddri öndun, þar sem þú munt upplifa ýmis konar öndunaræfingar og tækni, með tónlist og tónheilandi hljóðfærum ti að dýpka upplifunina. 
  • Tíminn byrjar og endar á djúpri slökun.
  • Hægt að fara í ísbað í stúdíóinu okkar fyrir þá sem hafa lært kælimeðferð/Wim Hof aðferðina.

Stakur passi í boði.

Vinsamlegast athugið að vegna mikillar eftirspurnar og takmarkaðs rýmis er nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram. 

Anda Rétt workshop - Breathe right workshop

Anda Rétt
Öndunarnámskeið

Á þessu námskeiði lærir þú:

  • Farið verður dýpra í öndunartækni og hagnýta öndun.
  • Að skilja þín öndunarmynstur og stilla þau af eftir þörfum.
  • Hvernig þú nærð stjórn á streituviðbrögðum þínum og bregðast við streituvöldum á sem árangursríkastan hátt með því að nota öndunina.
  • Að skilja lífeðlisfræði öndunarinnar, kraft hugans og afleiðingar þess að beina fókusinum að heilbrigðari huga og líkama. Burt frá langvarandi streitu. 
  • Að fara dýpra inn í skilninginn á mikilvægi öndunartækni. Að læra vísindin og verklega hlið réttrar öndunar og öndunaræfingar til að að bæta heilsuna.

“A calming breathing technique for stress, anxiety and panic takes just a few minutes and can be done anywhere.”

“Even as little as one minute of deep breathing can lessen anxiety and reduce stress hormones in your bloodstream.”

“WHO’s stress management guides provides information and practical skills e.g. breathing exercises to help people cope with stress.”

“The number one thing to get under control when you are feeling overwhelmed and/or anxious”

!
Widget Didn’t Load
Check your internet and refresh this page.
If that doesn’t work, contact us.

Myotape, Nasal dilator & Sport Mask

bottom of page